Jæja loksins skrifa ég eitthvað á þessa bloggsíðu mína.
Er búin að vera á Akureyri frá því síðastliðinn föstudag þann
31.mars. Fór norður með TÍKUNUM....mjög skemmtileg ferð og
mikið hlegið (við verðum allar 150 ára...því hláturinn lengir
lífið). Þegar norður var komið skveruðu tíkurnar sig upp og
skruppu út á lífið....drama kvöld.....allt verður að heita
eitthvað.
Á laugardagskvöld var svo skroppið út aftur, sumir fóru á EGÓ, í
Sjallanum en aðrir að dansa á ROCKO, þar sem Þorvaldur Halldórsson,
Davíð Smári og Helga Möller sáu um fjörið.
Síðan hefur verið setið við ritstörf þessa vikuna og gengið
ágætlega að skrifa ritgerð um forn menningarsamfélög á
Egyptalandi.
Um helgina koma svo KJEPPIRNIR norður og Maren fylgir með því
þeir ætla að kynna á STÓRTÓNLEIKUM í Sjallanum á laugardagskvöldið
þar sem: DÝRIÐ GENGUR LAUST í nokkra klukkutíma.
Spennandi.......
Hér er bara gaman, gaman,
gaman..................................
Og svo eru það nýjustu fréttirnar....ER FUGLAFLENSAN KOMIN?
Eigum við að skríða í felur, skíthrædd og skjálfandi og hætta að
hlusta á BÍBÍ...?????


